Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst segist hafa undir höndum öruggar upplýsingar um að stjórnendur skólans hafi haft samband við einstaka nemendur og beitt þá ótilhlýðilegum þrýstingi til að tryggja rektor skólans stuðning. Slík vinnubrögð séu með öllu óásættanleg.