Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærasta og samstarfskona kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epsteins, ætlar ekki að svara neinum spurningum þegar hún ber vitni fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum í dag. Hún kemur fyrir nefndina rafrænt úr fangelsi í Texas.Maxwell hefur setið í fangelsi frá því hún var handtekin í júlí 2020. Hún var samstarfskona og kærasta Epsteins til margra ára. Árið 2021 var hún dæmd í tuttugu ára fangelsi fyrir mansal og fyrir að tæla stúlkur undir lögaldri til fylgilags við Epstein.Í dag ber hún vitni fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Bandaríkjaþings sem hefur mál Epsteins til rannsóknar. Þingmaðurinn Ro Khanna, sem er í nefndinni, hefur upplýsingar um að Maxwell hyggist nýta sér stjórnarskrárvarinn rétt til þess að svara ekki spurningum. Þess í stað ætlar hún að lesa u