Alaska1867, Birnir og Digital Ísland eru meðal verðlaunahafa tónlistarverðlauna tímaritsins Reykjavík Grapevine sem haldin voru á Lemmy fyrir helgi. Verðlaunin voru veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr í fyrra.Hiphop-senan var í hámæli þar sem Alaska1867 var valin listamaður ársins, Dyrnar eftir Birni hlaut titilinn besta plata ársins og Digital Ísland átti lag ársins: eh plan?Tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine hafa verið haldin árlega frá 2013. Þetta er því í 14. sinn sem verðlaunin eru veitt. Í ár voru 36 atriði tilnefnd í níu flokkum af dómnefnd sem ritstjórn tímaritsins setti saman. Dómnefndina í ár skipuðu Alexander Le Sage de Fontenay, grafískur hönnuður og tónlistarblaðamaður, Ish Sveinsson Houle og Jóhannes Bjarkason, blaðamenn Reykjavík Grapevine, Kristján Guðjónsson, dagsk