Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, segir íslensk stjórnvöld vera að stíga mikilvæg skref til að auka áfallaþol og viðnámsþrótt landsins en þurfi jafnframt að veita orku- og veitufyrirtækjum skýrara umboð til að verja innviði landsins. Ísland megi ekki falla í þá gryfju að halda að ekkert geti gerst hér á landi, nú þegar Rússland á í stríði innan Evrópu.