Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hæstiréttur dæmir í máli manns sem drap konuna sína

Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni Þorsteins Hermanns Björnssonar sem banaði sambýliskonu sinni í Naustahverfi á Akureyri í hittifyrra. Dómstóllinn leit sérstaklega til þess við ákvörðun sína að Landsréttur dæmdi Þorstein fyrir manndráp en Héraðsdómur Norðurlands eystra sakfelldi hann aðeins fyrir alvarlega líkamsárás sem leiddi til dauða konunnar.Þorsteinn hafði lengi beitt sambýliskonu sína ofbeldi og taldi dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra því ekki víst hvort hann hefði ætlað að drepa konuna þegar hann varð henni að bana. Landsréttur taldi hins vegar að honum hefði ekki getað dulist að árásin var svo ofsafengin að hún gæti leitt til dauða.Þorsteinn leitaði til Hæstaréttar og bað um að dómstóllinn kvæði upp endanlegan dóm um ákæruna gegn sér. Verjandi hans sagði að verknaða
Hæstiréttur dæmir í máli manns sem drap konuna sína

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta