Ingibjörg Stefánsdóttir var aðeins tvítug þegar hún söng með rave-sveitinni Pís of keik, keppti í Eurovision með laginu „Þá veistu svarið“og lék í Veggfóðri: Erótískri ástarsögu, allt árið 1993. Hún tók í kjölfarið algjöra u-beygju, lærði jóga og hefur rekið Yoga Shala-jógastöðina í tuttugu ár.