Tónlistamaðurinn Bad Bunny, sem heitir réttu nafni Benito Antonio Martínez Ocasio, bauð upp á sannkallaða gleðiveislu með rómanskri sveiflu í hálfleik Ofurskálarinnar í nótt.Miikil eftirvænting er jafnan fyrir tónlistaratriðinu í úrslitaleik NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta og var þetta ár engin undantekning. En eins og svo margt annað í Bandaríkjunum um þessar mundir var aðdragandinn þrunginn pólitískum undirtónum.Smellið hér til að sjá atriðið.Bad Bunny er fæddur á eyjunni Puerto Rico í Karíbahafi, sem er hluti af Bandaríkjunum, en þó ekki fullgilt ríki. Hann syngur alfarið á móðurmáli sínu, spænsku, og er samkvæmnt flestum mælikvörðum vinsælasti tónlistarmaður heims.Umdeildar aðgerðir innflytjendastofnunar Bandaríkjastjórnar síðustu mánuði hafa að miklu leyti beinst að fólki af róm