Hvítur þjóðernissinni sem skaut 51 manns til bana í tveimur moskum í Christchurch á Nýja-Sjálandi árið 2019 vill draga játninguna sína til baka. Hann segist nú ekki hafa verið með réttu ráði þegar hann játaði vegna erfiðra aðstæðna í fangelsinu þar sem honum var haldið.