Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Írska lögreglan óskar aftur eftir upplýsingum um hvarf Jóns Þrastar

Sjö ár eru í dag liðin síðan Jón Þröstur Jónsson gekk út af hóteli í Dublin, höfuðborg Írlands, og hvarf. Enn hefur leit að honum ekki borið árangur og ekki skýrst hvað varð um hann.Lögreglan á Írlandi hefur enn á ný óskað eftir því að almenningur hafi samband hafi hann einhverjar upplýsingar sem gætu komið að gagni við rannsóknina.„Jafnvel minnstu upplýsingar, sama hversu léttvægar fólki kann að finnast þær, gætu komið að gagni við rannsóknina,“ segir lögreglan í tilkynningu sem hún birti.Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum frá fólki sem var í Whitehall, Santry eða Collins Avenue og nágrenni þegar Jón Þröstur hvarf.Írska lögreglan kom til Íslands í fyrra og tók viðtöl við tugi Íslendinga vegna rannsóknarinnar á hvarfi Jóns Þrastar.
Írska lögreglan óskar aftur eftir upplýsingum um hvarf Jóns Þrastar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta