„Það er bara ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón, eða hvort það er Íslendingur eða Víetnami. Það gilda augljóslega ekki sömu reglur,“ segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður og verjandi Quangs Le, sem sætir um þessar mundir rannsókn í tengslum við eitt stærsta mannsalsmál sem komið hefur upp hér á landi – og átti upptök sín í matvælageymslu í Sóltúni.