Efnahagsmyndin á Íslandi er nú tvískipt á óheppilegan hátt. Annars vegar eru sífellt skýrari merki um að dregið hafi úr umsvifum í hagkerfinu og að slaki sé að myndast í þjóðarbúinu. Hins vegar er verðbólga enn þrálát, verðbólguvæntingar haldast langt yfir markmiði Seðlabankans.