Íslensk stjórnvöld hafa ráðið bandaríska fyrirtækið Brownstein Hyatt Farber Schreck til að sinna hagsmunagæslu fyrir Ísland í Washington. Samningur Íslands við fyrirtækið er til sex mánaða og fær Brownstein greidda 25 þúsund Bandaríkjadali á mánuði, eða sem nemur rúmum þremur milljónum íslenskra króna. Íslenska ríkið gerði samning við fyrirtækið í lok janúar, innan við mánuði eftir að sendiherraefni Bandaríkjanna gagnvart Íslandi grínaðist með að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna.