Víða er hálka á vegum í byrjun dags og sums staðar flughált, svo sem á Innstrandavegi á Vestfjörðum, í Axarfirði norðaustanlands og í Fljótum, á Skagastrandarvegi, hluta Víkurskarðsvegar og í Svarfaðardal á Norðurlandi.Hálka, snjóþekja eða krapi er á flestum leiðum á Vestfjörðum, krapi á Almenningum, á Jökuldal, Brekknaheiði og Sandvíkurheiði norðan- og norðaustanlands. Snjóþekja er á Fjarðarheiði fyrir austan og ófært um Öxl og Breiðdalsheiði.Ekið í krapa. Safnmynd.RÚV / Rúnar Snær Reynisson