Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skoða ferla og siðareglur en segja ekki aðför að starfsfólki að vísa málum til siðanefndar

Stjórn Háskólans á Bifröst harmar að mál þriggja akademískra starfsmanna skólans sem vísað var til siðanefndar hafi ratað í fjölmiðla.Stjórnin segist meðvituð um hvaða áhrif opinber umfjöllun geti haft á þá sem telji tilefni til að leita til siðanefndar með álitaefni, þannig verði stjórnendur, starfsfólk og nemendur innan og utan skóla að geta leitað til siðanefndar eða verið þar til umfjöllunar án ótta.Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn skólans sendi starfsfólki og nemendum eftir að siðanefnd komst að þeirri niðurstöðu að þrír akademískir starfsmenn hefðu ekki brotið gegn siðareglum. Skólinn sendi tilkynninguna einnig á fjölmiðla.Skólameistari og tveir stjórnendur við skólann komu að því að vísa efasemdum um aðkomu þriggja starfsmanna að ritun fræðigreina til siðanefndar. Siðanefnd
Skoða ferla og siðareglur en segja ekki aðför að starfsfólki að vísa málum til siðanefndar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta