Norðaustanátt næðir um landsmenn í dag og áköfust verður hún á norðvesturhluta landsins þar sem er útlit fyrir hvassviðri.Útlit er fyrir slyddu eða rigningu á norðan- og austanverðu landinu og snjókomu til fjalla. Á Suður- og Vesturlandi verður skýjað með köflum og yfirleitt þurrt.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðaustan átta til átján metrar á sekúndu, hvassast norðvestantil. Slydda eða rigning með köflum, en yfirleitt þurrt á Suðvestur- og Vesturlandi. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast sunnan til. Hvessir við suðausturströndina í kvöld.Norðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu á morgun, en fimmtán til tuttugu á Vestfjörðum og Suðausturlandi. Dálítil él, en bjart með köflum á sunnan- og vestanverðu landinu. Kólnandi veður. Dregur víða úr vindi annað kvöld.