Þungvopnaðir menn í borgaralegum klæðum rændu venesúelska stjórnarandstæðingnum Juan Pablo Guanipa skömmu eftir að hann var látinn laus úr fangelsi í Caracas.Juan Pablo Guanipa stendur í ræðustól með skilti þar sem segir að yfir milljón íbúa Zulia-ríkis fái aðeins eina máltíð á dag.AP / Fernando LlanoFriðarverðlaunahafinn Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum X fáeinum mínútum eftir að Guanipa féll í hendur ræningjanna. „Við krefjumst þess að honum verði umsvifalaust sleppt,“ segir Machado.Guanipa er rúmlega sextugur, fyrrverandi varaforseti þingsins, og var sleppt úr fangelsi á sunnudag. Stjórnvöld hafa undanfarinn mánuð sleppt pólítískum föngum eftir að bandarískir hermenn námu Nicolas Maduro forseta á brott.