Jarðskjálftahrinan við Eldey á Reykjaneshrygg færðist í aukana á ný á þriðja tímanum í nótt eftir að nokkuð dró úr virkninni undir miðnætti. Nokkrir skjálftar af stærðinni tveir til þrír mældust þegar leið á nóttina og í kjölfarið fylgdu smærri eftirskjálftar.Engin merki eru um gosóróa að sögn Ingibjargar Andreu Bergþórsdóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, sem segir allt benda til að á ferðinni sé hefðbundin skjálftavirkni á flekaskilum.Frá því um hádegisbil í gær hafa mælst yfir þrjú hundruð jarðskjálftar. Ingibjörg segir sérfræðinga Veðurstofunnar fylgjast náið með framvindu mála.Aukin spenna hefur verið á þessum slóðum frá því eldsumbrot hófust á Reykjanesskaga fyrir um fimm árum. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur sagði í kvöldfréttum sjónvarps ástæðu hrinunnar að hlu