Geimferðafyrirtækið SpaceX hefur ákveðið að leggja áætlanir um mannaðar ferðir til og landnám reikistjörnunnar Mars til hliðar og einblína frekar á að koma upp byggð á tunglinu.Aðaleigandinn og stofnandinn Elon Musk tilkynnti þetta í gær en bætti við að ekki hefði verið hætt við Marsferðir og uppbyggingu þar. Huga megi að því eftir fimm til sjö ár. SpaceX hefur notið mikillar velgengni með samvinnu við NASA en gagnrýnendur hafa sagt landnámsdraumana á Mars fullmetnaðargjarna.Yfirlýsing Musks er í takti við hugarfarsbreytingu Donalds Trump forseta, sem telur orðið útlokað að senda menn til Mars fyrir lok kjörtímabilsins öfugt við það sem hann áður boðaði.„Fyrir þau sem ekki vita hefur SpaceX ákveðið að einblína á byggingu sjálfbærrar borgar á tunglinu enda gæti það tekist á innan við áratug