Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þingnefnd krefur ríkisstjórnina að upplýsa um nafn uppljóstrara innan IRA

Þingnefnd um málefni Norður-Írlands krefst þess að breska ríkisstjórnin ljóstri upp nafni flugumanns breska hersins innan Írska lýðveldishersins, sem undir dulnefninu Stakeknife leiddi dauðasveit sem myrti og pyntaði tugi meinta svikara og uppljóstrara á tímum óaldarinnar í landinu. Hann rændi einnig fimmtán manns.Breska leyniþjónustan MI5 og herinn eru sögð hafa hylmt yfir ódæði mannsins áratugum saman og ekki haft stjórn á athæfi hans. Í desember kom út skýrsla byggð á níu ára rannsókn lögreglu undir heitinu Operation Kenova, sem leiddi í ljós að Stakeknife hafði gerst sekur um verstu mögulegu glæpi. Nefndin segir það almenningi verulega í hag að afhjúpa hver maðurinn er auk þess sem útsendarar sem rjúfi öll mörk geti ekki byggt upp traust um gervallt Norður-Írland í skjóli nafnleyndar.
Þingnefnd krefur ríkisstjórnina að upplýsa um nafn uppljóstrara innan IRA

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta