Minnst níu manns fórust þegar gömul íbúðarbygging hrundi í Bab al-Tabbaneh, fátækasta hverfi líbönsku hafnarborgarinnar Trípólí. Talið er að um 22 hafi verið í tólf íbúðum hússins þegar það hrundi.Að minnsta kosti sex hefur verið bjargað lifandi undan rústunum og fluttir á sjúkrahús. Björgunarsveitir leita enn að eftirlifendum. Nærliggjandi hús voru rýmd af ótta við hrun. Borgarstjórinn Hamid Karimeh segir þúsundir íbúa Trípólí í hættu vegna fjölda óöruggra bygginga; ástandið væri verra en yfirvöld réðu við.Staða mála í Trípólí er ekki einsdæmi í Líbanon, um allt land standa byggingar sem standast engar reglugerðir.Margar þeirra voru reistar á árum borgarstríðsins 1975 til 1990 og voru iðulega hækkaðar í leyfisleysi. Ríkisstjórnin hefur boðið íbúum ónýtra húsa og íbúða styrki til að koma s