Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mona Juul hætt sem sendiherra vegna tengsla við Jeffrey Epstein

Mona Juul hefur sagt af sér sem sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak vegna tengsla við fjárfestinn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Utanríkisráðherrann Espen Barth Eide tilkynnti þetta í gær. Eide segir að samskipti Juul við Epstein sýni alvarlegan dómgreindarskort. Allt bendi til að tengsl Juul og eiginmannsins Terje Rød-Larsen við Epstein hafi verið umfangsmikil og náin. Eide kveðst brugðið yfir mörgu sem sjá má í skjölunum. „Erfitt verður að byggja upp það traust sem embætti hennar krefst,“ sagði Eide við NRK. Juul var leyst frá skyldum sínum í síðustu viku meðan ráðuneytið rannsakaði eðli samskipta hennar og Epsteins og svipt öryggisheimildum sínum. Ráðherrann kveðst ekki vilja ræða mál Juul í hörgul fyrr en hún hefur lagt spilin á borðið, sem líklega gerist í vikunni. Eide se
Mona Juul hætt sem sendiherra vegna tengsla við Jeffrey Epstein

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta