Sósíalistinn António José Seguro hafði betur gegn hægrimanninum André Ventura í annarri umferð portúgölsku forsetakosninganna í dag. Hann er með 66 prósent atkvæða þegar nærri öll atkvæði hafa verið talin gegn 34.Seguro tekur því við af íhaldsmanninum Marcelo Rebelo de Sousa, sem hefur setið tvö kjörtímabil og mátti því ekki gefa kost á sér að nýju.Seinni hluti kosningabaráttunnar litaðist af tveggja vikna löngu ofviðri sem kostaði minnst sjö mannslíf og olli milljóna evra eignatjóni. Venturo hafði gagnrýnt viðbrögð við ofviðrinu og reyndi án árangurs að fá kosningunum frestað.Seguro, sem er 63 ára, hefur lifað og hrærst í stjórnmálum frá því á unglingsárum þegar hann gekk til liðs við ungliðahreyfingu Sósíalistaflokksins. Hann þurfti að láta í minni pokann árið 2014 sem aðalritari flokksi