Myndir sem teknar eru af fólki án þeirra vitundar, einkum af konum, hafa verið seldar fyrir háar fjárhæðir á netinu víða um heim. Dæmi eru um að myndskeið af kynlífi á hótelherbergi og skoðun hjá kvensjúkdómalækni hafi verið seld inni á lokuðum klámsíðum.Meðal dæma um myndefni eru frá næturlífi í Manchester, frá skoðun hjá kvensjúkdómalækni í Búlgaríu og frá hótelherbergi í Kína. Frá síðastnefnda staðnum var kynlífi streymt beint á streymisveitu.