Arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir hefur talað fyrir umbreytingum í hönnun og framkvæmd mannvirkja. Hún er eigandi S.AP Arkitekta og hefur, ásamt börnum sínum Arnari og Björgu Skarphéðinsbörnum, búið til sýndarveruleika sem sýnir fram á hvernig mannvirkjagerð gæti litið út á Íslandi um árið 2150.