Þrír eru í haldi vegna stunguárásar fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Gabríel Douane einn grunaðra. Hann losnaði úr fangelsi í síðustu viku. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglunnar, segir rannsókn í gangi. Lögregla vinni nú að því að safna að sér myndefni og gögnum um árásina.