Andleg heilsa Bandaríkjamanna á miðjum aldri hefur farið versnandi með hverri kynslóðinni, samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn. Niðurstöðurnar benda til þess að hið gagnstæða eigi við í Evrópu.Einmanaleiki og einkenni þunglyndis hafa farið versnandi með hverri kynslóðinni, meðal Bandaríkjamanna á aldrinum fjörutíu til 65 ára, samkvæmt nýrri rannsókn Arizona State University. Andleg heilsa Bandaríkjamanna sem fæddir eru á áttunda áratug virðist vera verri en þeirra sem fæddir voru á fjórða áratug þegar þeir voru á miðjum aldri. Minni og gripstyrkur reyndust einnig verri nú en áður.Hið gagnstæða virðist eiga við víða í Evrópu, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar – ekki síst á Norðurlöndunum, þar sem þær benda til þess að fólki á miðjum aldri virðist líða betur á miðjum aldri með hverri kyns