„Ég vil sjá börnin mín vaxa úr grasi. Mig langar að verða amma. Ég er ekki reiðubúin til að deyja,“ segir Ingibjörg Gísladóttir Lauvland með kökk í hálsinum í samtali við norska ljósmyndarann Olav Svaland. Ingibjörg er Íslendingur búsett í Noregi en fyrir tveimur árum greindist hún með ALS, líkt og faðir hennar á undan og fleiri skyldmenni. Pabbi hennar býr á Íslandi og hefur náð nokkrum bata með lyfjagjöf. Ingibjörg fær ekki lyfið; norska ríkið segir nei.