Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ekkert sérstaklega hættulegt“ að lána íslenska ríkinu

Uppfært lánshæfismat Fitch fyrir ríkissjóð eru góðar fréttir að mati Gylfa Magnússonar, prófessors við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann á þó ekki von á að miklar breytingar á lánskjörum fylgi.„Þetta eru út af fyrir sig góðar fréttir þó að þetta séu kannski ekki stórfréttir. En þeir eru búnir að leggja mat á það sem hefur verið að gerast á Íslandi undanfarin misseri og stöðuna og framtíðarhorfur og eru greinilega ágætlega sáttir,“ segir Gylfi. Vísað sé sérstaklega í lækkun skulda ríkissjóðs með uppgjöri á ÍL-sjóði og sölu á hlutabréfum Íslandsbanka.„Þegar á heildina er litið þá eru kannski ekki nein teikn á lofti um að ríkissjóður sé að stefna í nein vandræði með sínar skuldir. Það er auðvitað lykilatriði í að meta lánshæfi.“ GÆTI GAGNAST FYRIRTÆKJUM SEM TAKA LÁN ERLENDIS Fitch
„Ekkert sérstaklega hættulegt“ að lána íslenska ríkinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta