Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fröken Dúlla: Tekst einstaklega vel til og hrapar aldrei að ályktunum

Soffía Auður Birgisdóttir skrifar:Í íslenskri sögu renna tveir rauðir þræðir í gegnum frásagnir af hernámsárunum, því tímabili sem hefst með komu Breta vorið 1940 og lýkur þegar bandarískir hermenn yfirgáfu landið 1947, tveimur árum eftir stríðslok. Annar söguþráðurinn varðar það hvernig Íslendingar högnuðust á hernáminu og reistu efnahag landsins við eftir hörð kreppuár. Hinn fjallar um „siðferðislegt fall“ íslenskra kvenna sem áttu samneyti við setuliðsmenn. Fyrri frásögnin er saga uppgangs og sigra en sú síðarnefnda er saga niðurlægingar og fordæmingar. Þó að ýmsum væri illa við brask og bretavinnu komst sú fordæming ekki í hálfkvisti við lætin í kringum umgengni íslenskra kvenna við hermenn. Samtímaumræða um þau mál einkennist af því sem fræðimenn hafa síðan skilgreint sem siðfár (e. m
Fröken Dúlla: Tekst einstaklega vel til og hrapar aldrei að ályktunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta