Skjálftahrina er í gangi við Eldey á Reykjaneshrygg. Tugir skjálfta hafa mælst þar í dag, sá stærsti 3,4 að stærð. Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir ákefðina hafa minnkað þrátt fyrir að svo stór skjálfti hafi mælst fyrir um klukkutíma.