Hreindýratalningar úr þyrlu hafa gefist vel. Betur gengur að finna dýrin og telja af meiri nákvæmni. Það á sinn þátt í því að hægt var að auka kvótann um rúm 40 prósent og nú má veiða 936 dýr. Metið verður hvort hægt sé að leyfa stofninum að vaxa frekar eða hvort gera þurfi meira til að halda hreindýrunum í skefjum.Veiðikvóti hafði farið minnkandi í sex ár og talsverð óvissa var um hvernig dýrin dreifðust um Austurland. Talningar úr flugvél og af landi skiluðu oft á tíðum takmörkuðum árangri og ákveðið var í vor að prófa að telja úr þyrlu. AUÐVELDARA AÐ FINNA HÓPA MEÐ ÞYRLU EN FLUGVÉL Hálfdán Helgi Helgason, vistfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands, segir betur hafa gengið að finna dýr á erfiðum svæðum úr þyrlunni og góðar talningar hafi átt sinn þátt í að hægt var að auka kvótann.„Þy