Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lítil þátttaka í rannsókn á spilahegðun ógnar niðurstöðum

Stór rannsókn sem ætlað er að mæla þátttöku Norðurlandabúa í peningaspilum fer fram um þessar mundir. Daníel Þór Ólason prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands er ábyrgðarmaður rannsóknarinnar hér á landi.Alls fengu 30 þúsund Íslendingar bréf í pósti frá Zürich með boð um þátttöku í könnuninni en þeir voru valdir af tilviljun úr þjóðskrá. Þá voru einnig send út sms. Daníel hvetur alla þá sem fengið hafa boð að taka þátt í rannsókninni hvort sem þeir hafa spilað peningaspil eða ekki.Auk Daníels koma að rannsókninni vísindamenn við Háskólann í Bergen í Noregi, Háskólann í Álaborg í Danmörku, Sænsku lýðheilsustofnunina, Finnsku heilbrigðis- og velferðarstofnunina og sérfræðingar hjá eftirlitsstofnunum með peningaspilum í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. ÞÁTTTAKA EKKI NÆGILEGA GÓÐ HINGAÐ TIL
Lítil þátttaka í rannsókn á spilahegðun ógnar niðurstöðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta