Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið meintan geranda í hnífsstunguárás sem varð í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld. Logi Sigurjónsson aðalvarðstjóri segir að maðurinn hafi verið handtekinn á þriðja tímanum í dag í íbúð í Reykjavík.Árásin varð fyrir utan skemmtistað í miðborginni um klukkan hálf tólf fyrir miðnætti. Fórnarlamb árásarinnar var flutt á slysadeild til aðhlynningar en gerandinn flúði af vettvangi.Hans var í kjölfarið leitað af lögreglu sem naut um tíma liðsinnis sérsveitar ríkislögreglustjóra.Maðurinn sem varð fyrir árásinni er á þrítugsaldri. Hann var útskrifaður af spítala í morgun. Logi segir hann ekki hafa hlotið lífshættulega áverka en getur að öðru leyti ekki tjáð sig um árásina sjálfa.Logi segir meintan geranda hafa komið til kasta lögreglu áður. Hann segir að væ