Aðeins fjórtán ára flutti Miite að heiman. Ekki vegna þess að hún neyddist til þess, heldur vegna þess sem hún kallar meðfædda sjálfstæðisþörf. „Ég hafði alltaf trú á því að ég gæti séð um mig sjálf,“ segir hún. Hún safnaði peningum, sagði fjölskyldunni frá áformum sínum og flutti til Ilulissat, þar sem hún bjó hjá systur sinni í tæpan áratug...