Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fleiri jarðskjálftahrinur vegna aukinnar spennu á Reykjanesskaga

Fremur áköf jarðskjálftahrina stendur yfir við Eldey á Reykjaneshrygg og hafa um 100 skjálftar mælst til þessa. Hrinan hófst um hádegisbil, en stærsti skjálftinn hingað til mældist 2,8. Þetta er önnur skjálftahrinan á svæðinu á stuttum tíma, því tugir skjálfta mældust þar aðfaranótt föstudags. Jarðskjálftahrinur á Reykjaneshrygg eru fremur algengar en þær eru alla jafnan vegna flekahreyfinga. Síðast var hrina við Eldey í líkingu við þessa í byrjun desember. Veðurstofu hafa ekki borist tilkynningar um að skjálftarnir til þessa í dag hafi fundist í byggð. Beðið hefur verið eftir öðru eldgosi á Reykjanesskaga. Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir hrinuna ekki endilega vísbendingu um næsta eldgos. „Það er kannski ekki beint hægt að segja að þetta tengis
Fleiri jarðskjálftahrinur vegna aukinnar spennu á Reykjanesskaga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta