Það má búast við að aðdáendur ameríska fótboltans vaki eitthvað lengur en venjulega í nótt þegar úrslitaleikurinn - Ofurskálin eða Super Bowl - fer fram. Veitingastaðir verða opnir fram á nótt og þessu fylgja ýmsar hefðir.Í Ofurskálinni eigast Seattle Seahawks og New England Patriots við og leikurinn hefst klukkan hálftólf í kvöld að íslenskum tíma.Nokkrir veitingastaðir í Reykjavík hafa fengið undanþágu fyrir lengri opnunartíma, til klukkan hálf fimm. Ýmsar hefðir tengjast áhorfinu og margar hverjar mat, einkum neyslu á kjúklingavængjum.„Við erum með forsölu á vængjum sem við höfum verið með í gangi í meira en viku og það er allt að verða uppbókað í forsölu á vængjum á þessari árlegu amerísku hátíð sem Super Bowl er,“ segir Lýður Vignisson einn eigenda veitingastaðarins Just Wingin it sem