Sex mótmælendur hið minnsta voru handteknir í mannmörgum mótmælum í gærkvöld. Þúsundir flyktust út á götur borgarinnar í gær.Sumir mótmæltu miklum hækkunum framfærslukostnaðar í landinu en aðrir beindu spjótunum að vetrarólympíleikunum sem nú eru haldnir í Mílano og Cortina. Að mati mótmælenda eru neikvæð áhrif leikanna orðin of mikil, bæði á umhverfi og loftslag en einnig á gestgjafaborgir leikanna.Mótmælin fóru að mestu friðsamlega fram. Það skarst þó í odda í gærkvöldi þegar rmótmælendur köstuðu steinum og skutu flugeldum í átt að lögreglu. Hún beitti táragasi og sprautaði vatni á mótmælendur.Þúsundir mótmælenda lögðu leið sína á götur Mílanó í gær til að mótmæla meðal annars neikvæðum áhrifum vetrarólympíuleikanna á umhverfið og gestgjafaborgir. Þau fóru að mestu friðsamlega fram en ti