Lyfjafræðingar eru margir hverjir afar ósáttir við breytingar sem til stendur að gera á lögum um sjúkratryggingar en frumvarp þess efnis er nú í meðförum þingsins. Sérstaklega eru gerðar athugasemdir við 24. grein frumvarpsins sem þeir segja að feli í sér verulega og óásættanlega breytingu á ábyrgð lyfjafræðinga.