Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ferðamaður féll í Jökulsárlón

Ferðamaður féll í Jökulsárlón rétt fyrir hádegi í dag. Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, segir að viðbragð hafi verið virkjað og þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út.Síðar kom þó í ljós að maðurinn hafði komist aftur upp á bakka með hjálp frá samferðafólki sínu.Einar segir hann því hafa sloppið fyrir horn og ekki þurft björgunaraðstoð. Maðurinn var svo fluttur á heilsugæslustöð á Hornafirði til aðhlynningar. Ekki er vitað meira um ástand hans.Frá Jökulsárlóni.RUV / Rúnar Snær Reynisson.
Ferðamaður féll í Jökulsárlón

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta