Jarðskjálfti að stærðinni 2,8 mældist um átta kílómetra norður af Eldey á Reykjaneshrygg rétt eftir klukkan 13:00 í dag. Margir minni skjálftar mældust einnig og er hrinan svipuð þeirri sem varð í fyrrinótt.Samkvæmt upplýsingum frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar eru þetta áframhaldandi jarðhreyfingar á Reykjanesskaga, svipaðar þeim sem áttu sér stað í fyrrinótt.Nokkur hreyfing hefur verið á jörð á Reykjanesi í dag og í gær.