Trausti Ólafsson skrifar:Fræðimaðurinn, leikskáldið og leikrýnirinn Eric Bentley var mjög virtur á sínum tíma en núna er hann líklega þekktastur fyrir einfalda formúlu sem hann setti fram um hver væri minnsta eining leikhúss. Minnsta eining leikhúss er, sagði Bentley, þegar A leikur B og C horfir á.Samkvæmt þessari formúlu er leikhúsið listform þar sem þeir sem á sviðinu standa þykjast vera einhverjir aðrir en þeir í raun og veru eru.En leikararnir í Þegar ég sé þig sé ég mig, sýningu sem var frumsýnd á fimmtudagskvöldið á Litla sviði Borgarleikhússins, koma allir fram sem þau sjálf og segja áhorfendum sögur úr sínu lífi. Óformlegt samkomulag um það milli áhorfenda og leikara að láta eins og það sem er að gerast á leiksviðinu sé að gerast í alvörunni gildir þess vegna ekki frekar en formúl