Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Loðnuvertíðin farin á fullt fyrir austan

Loðnuvertíð er komin á fullt fyrir austan. Annasöm vika er að baki hjá Hampiðjunni í Neskaupstað þar sem skip tóku nætur og gerðu sig klár. Rekstrarstjóri hjá Eskju á Eskifirði segir verðmæt loðnuhrogn farin að stækka og veiðin að glæðast.„Já, nú er bara allt farið á fullt, Aðalsteinn var kominn í morgun með þúsund tonn af loðnu sem hann veiddi í gær í tveim köstum,“ segir Hlynur Ársælsson, rekstrarstjóri uppsjávarfrystihússins Eskju á Eskifirði.Verðmætasta afurð loðnu eru hrognin og því best að veiða rétt áður en loðnan hrygnir og hrognin eru orðin þroskuð.„Já, hún er ekki alveg komin í það form enn þá, hún er svona fjórtán komma sex prósent hrogn núna,“ segir Hlynur. „Við erum svona að framleiða á Asíumarkað en þetta er ekki svona þessi príma, sem er kannski sautján til nítján prósent.“H
Loðnuvertíðin farin á fullt fyrir austan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta