Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Mikilvægt að enginn sé skilinn eftir“

Réttindafélag fanga vill að maður sem var á Bakkakoti sem barn fái að ljúka hérlendis afplánun dóms sem hann hlaut á Spáni. Ríkisstjórnin hefur lofað þeim sem voru vistaðir á Bakkakoti sálfræðiþjónustu og aðstoð.Í fréttaskýringaþættinum Kveik í vikunni sögðu fimm menn að húsfreyjan á Bakkakoti á Rangárvöllum hefði beitt þá margvíslegu ofbeldi þegar þeir voru vistaðir þar sem börn. Einn þeirra, Guðmundur Freyr Magnússon, situr í fangelsi á Spáni fyrir að verða unnusta móður sinnar að bana árið 2020. Afstaða, félag fanga, hefur beitt sér fyrir því að hann fái að ljúka afplánun hér.„Afstaða hefur unnið í því núna undanfarin ár að reyna að fá manninn heim til að hann geti í raun og veru fengið aðstoð við sínum áföllum og veikindum. Hann er búinn að vera frekar veikur þarna úti,“ segir Guðmundu
„Mikilvægt að enginn sé skilinn eftir“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta