Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þarf alltaf að vera app?

Hugtakið app-þreyta lýsir hversu yfirþyrmandi notendum getur fundist framboð smáforrita til að leysa öll möguleg og ómöguleg verkefni. Smáforrit fyrirtækja eru hönnuð í fjölbreyttum tilgangi, í þeim má stundum nálgast afslætti, þau geta auðveldað viðskipti eða hreinlega verið forsenda þeirra.Nýlega gáfu Hagar út nýtt afsláttarforrit. Hvers vegna leggur fyrirtæki í dýra hugbúnaðarþróun og markaðssetningu á smáforriti til þess að veita viðskiptavinum afslátt - hvað græðir fyrirtækið eiginlega á því?Guðmundur Jóhannsson tæknisérfræðingur segir fyrirtæki ekki eingöngu sækjast eftir auknum viðskiptum með því að bjóða afslátt í appi, þau safni líka gögnum.„Fyrirtækið græðir á því að vita sem mest um viðskiptavini sína, aldur, kyn, kauphegðun. Allt þetta hjálpar þeim til að mögulega selja meira.“
Þarf alltaf að vera app?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta