Umræðan um áhrif síma og samfélagsmiðla á börn og ungmenni er ekki bundin við Ísland. Ástralir hafa til að mynda hækkað aldurstakmark á samfélagsmiðlum upp í 16 ár og í Evrópu íhuga mörg lönd hækkun í 15 ár. Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur og varaþingmaður, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að aldurstakmarkið hér verði 15 ár.Hann segir samfélagsmiðlana hafa mikil áhrif. Þeir virki öðru vísi en leitarvélar því þar geti börn séð skaðlegt efni sem þau voru ekki að leita sérstaklega að. Auk þess sé auglýsingum beint að hópum sem geti valdið skaða. Þannig fái drengir frekar auglýsingar um veðmál og stúlkur um megrunarlyf.Menntamálaráðherra hefur einnig lagt fram lagabreytingartillögu sem heimilar henni að setja reglur um notkun síma og snjalltækja í skólum. Kópavogsbær gaf út yfirlýsin