Lögregla leitar enn að meintum geranda í hnífsstunguárás sem varð fyrir utan skemmtistað í miðborginni í gærkvöld.Log Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að árásin hafi verið gerð um klukkan hálf tólf fyrir miðnætti. Hann segir lögreglu hafa leitað að meintum árásarmanni í alla nótt og í morgun. Hún hafi grunsemdir um hver hafi verið að verki. Ekkert er vitað um tildrög eða ástæður árásarinnar.Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til í gærkvöld og hefur aðstoðað við vinnslu málsins og leit. „Það er náttúrlega verið að leita að hættulegum einstaklingi sem mögulega er vopnaður,“ segir Logi.Sá sem varð fyrir árásinni er á þrítugsaldri. Ekki fást upplýsingar um líðan hans en í dagbók lögreglu segir að hann hafi verið fluttur á slysadeild.