Útlit er fyrir að styrkir Reykjavíkurborgar til skátafélaga í borginni verði skornir niður um þriðjung. Óskar Eiríksson, formaður Skátasambands Reykjavíkur, segir skátafélögin byggja tilveru sína á styrkjum sem hafi ekki hækkað á síðustu árum, þrátt fyrir hækkun verðlags.„Þetta er talsverð blóðtaka. Við höfum þurft að skera niður út af hækkandi verðlagi. Við höfum þurft að draga úr viðhaldi skátaheimila og öðrum þáttum þar til að viðhalda góðu fólki til að styðja við sjálfboðaliðana,“ segir Óskar. 80% AF FJÁRMAGNINU KEMUR FRÁ BORGINNI Tillaga að nýjum samningi borgarinnar við Skátasambandið var kynnt í nóvember. Að sögn Óskars er útlit fyrir að fjárstyrkur borgarinnar lækki úr rúmlega 23 milljónum í 15. Þá stendur til að fella niður stuðning við stöðugildi hjá Skátasambandinu, sem kosta