Abbas Aragchi utanríkisráðherra Írans segir að aldrei verði látið undan þrýstingi um að hætta að auðga úran, jafnvel þótt árás verði gerð á landið. Araghchi lét þessi orð falla á málþingi í höfuðborginni Teheran í morgun og sagði Írani hafa greitt friðsamlega kjarnorkuáætlun sína dýru verði.Tveir dagar eru síðan Araghchi ræddi kjarnorkuáætlun Írans óbeint við þá Steve Witkoff og Jared Kushner, erindreka Bandaríkjastjórnar í Óman.„Hvers vegna leggjum við svona mikla áherslu á auðgun úrans þrátt fyrir hótanir um stríð? Jú, vegna þess að ekkert annað ríki hefur rétt til að segja okkur fyrir verkum,“ sagði Araghchi. Hann kvaðst jafnframt ekki óttast herskipaflota Bandaríkjanna í Persaflóa.