Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Léttskýjað sunnan- og vestanlands en annars ofankoma

Í dag verður austan og norðaustan stinningsgola eða kaldi en strekkingur eða allhvass vindur eftir hádegi á Vestfjarðakjálkanum. Búast má við éljum á norðaustan- og austanverðu landinu en samfelldari ofankomu norðvestantil. Léttskýjað sunnan- og vestanlands.Það bætir í vind í nótt. Strekkingur eða alhvass vindur á morgun. Í veðurpistli Veðurstofunnar segir að búast megi við rigningu eða slyddu norðan- og austanlands á morgun, „en ekki þarf þó að fara hátt yfir sjávarmál til þess að komast í snjókomu“.Áfram verður bjart og þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti í kringum frostmark. SNJÓÞEKJA Á HLUTA HRINGVEGARINS Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum í nær öllum landshlutum, nema þá helst á Suðurlandi. Þar er þó hált á sumum leiðum.Á Vestfjörðum er snjóþekja á nokkrum leiðum sem og á N
Léttskýjað sunnan- og vestanlands en annars ofankoma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta