Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Um 40 manns flutt í öruggt skjól vegna gróðurelda í Þrændalögum

Byggingar eru í hættu vegna nokkurra gróðurelda sem loga við þorpið Oksvoll í norska fylkinu Þrændalögum. Um það bil fjörutíu íbúar í nokkrum húsum hafa verið fluttir brott í öryggisskyni samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins.Áfallateymi er í viðbragðsstöðu. Nokkrir bændur hafa komið skepnum í öruggt skjól og rafmagn hefur verið tekið af svæðinu. NRK hefur eftir aðgerðastjóra slökkviliðs að eldarnir hafi teygt sig þangað sem óttast var að þeir gerðu.Illa gengur að halda aftur af útbreiðslunni enda nokkuð hvasst að sögn aðgerðastjórans en björgunarsveitir, fulltrúar almannavarna og bændur með dælubíla liðsinna slökkviliði í baráttunni.Mjög þurrviðrasamt hefur verið í Þrændalögum og fremur hlýtt sem getur skapað kjöraðstæður fyrir gróðurelda. Lögreglu grunar að leikur með kveikjara hafi kvei
Um 40 manns flutt í öruggt skjól vegna gróðurelda í Þrændalögum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta